Lakkrískökubitar

3 eggjahvítur

200 g ljós púðursykur

1 lítill poki af Nóa-lakkrískurli

150 g saxað suðusúkkulaði

 

Þeytið eggjahvíturnar og púðursykurinn vel saman. Setjið súkkulaði og lakkrískurl ofan í þeyttu eggjahvíturnar og blandið varlega saman við með sleif. Búið til litlar klessur úr marensinum með tveimur teskeiðum og setjið á bökunarpappír. Setjið inn í 150°C heitan ofn og bakið í um 20 mínútur,

eða þangað til þær eru orðnar ljósbrúnar og komnar smásprungur í þær.