Kornflex-makkarónur Styrmis

250 g eggjahvítur
925 g sykur
115 g kornflex
475 g mjólkursúkkulaði (dropar)
20 g vanillusykur (annars vanilludropar eftir
smekk)
115 g kókosmjöl
10 g salt

Þeytið saman eggjahvítur, sykur og salt. Stífþeytið þó ekki alveg. Blandið öðrum þurrefnum saman við. Sprautið með sprautupoka eða notið teskeið til að búa til kökurnar (beint á bökunarplötuna). Bakið í 10 til 11 mínútur við 170°C.