Kókosgrillaður kjúklingur
Þessi er frábær og tilvalinn á grillið! Kókosið gefur kjúklingnum meiriháttar gott bragð. Athugið að kjúklingabringurnar þurfa að liggja í marineringarlegi í 2 klst.
Hráefni:
360 g kjúklingabringur
Marinering
4 dl kókosmjólk
50 g hreinsaður og saxaður engifer
3 msk sojasósa (helst Kikkoman)
2 msk flórsykur eða púðursykur
25 g kóríander
1 msk fiskisósa (asísk)
4 stk rauður chilipipar
4 stk hvítlauksgeirar
safi úr 1 stk. lime
Til skrauts
rauður chilipipar, skorinn í teninga, og vorlauksstrimlar
Marinering
Blandið öllu hráefninu saman. Skerið lítillega í bringurnar og setjið í skál.
Látið skálina í kæli og látið marinerast í 2 tíma.
Matreiðsla
Hitið grillið eða pönnuna og steikið bringurnar á skinnhliðinni fyrst og gætið
þess bringurnar séu þaktar með marineringarleginum. Grillið í u.þ.b. 15 mínútur
eða þar til kjötið hefur náð 75 gráðu hita í kjarna. Veltið bringunum öðru
hverju á meðan eldun á sér stað. Hitið á meðan restina af marineringarleginum
vel og setjið í skál.
Framreiðsla
Berið fram með t.d. fersku salati og hrísgrjónum.