Kókosdraumur


300 gr sykur
300 gr smjör
300 gr hveiti
300 gr kókosmjöl
1 stk egg
1 tsk hjartarsalt

Setjið öll hráefnin í skálina og vinnið rólega saman með káinu(á hrærivélinni), látið standa. Gerið kúlur, setjið á plötu, þrýstið á með fingri, bakið við 200° í 10-12 mínútur.