Kókos/passion terta

Möndlubotnar

135 g eggjahvítur
75 g sykur
70 g flórsykur
30 g hveiti
15 g rjómi
45 g eggjahvítur

 

Þeytið 135 g af eggjahvítum. Bætið sykri út í og þeytið áfram. Blandið verlega saman við stífþeyttu eggjahvíturnar með sleif. Smyrjið á plötu og bakið við 200°c í 10-12 mín. Stingið út tvo litla botna eða einn stórann og setjið botninn ofan í hringform.

 

Svissneskur marengs

100 g eggjahvítur (3-4 eggjahvítur)

150 g sykur

Sjóðið vatn í potti og setjið sykur og eggjahvítur í skál og hitið í vatnsbaði upp í ca 55°C (Vel heitt). Hellið síðan í hrærivél og stífþeytið.

 

Passíonmús

3 blöð matarlím
200 g passíonpúrra (fæst í Hagkaupum)
150 g svissneskur marengs
200 g rjómi

Leggið matarlím í bleyti, sjóðið helminginn af púrrunni og léttþeytið rjómann. Setjið matarlímsblöðin út í heita púrruna og hrærið, setjið restina af púrrunni í og þegar blandan er ca 35°C blandið þá 150 g af marengsinum saman við í tveimur skömmtum og blandið á milli. Blandið svo rjómanum út í. Hellið músinni í tvo litla hringi eða einn stórann og frystið.

 

Kókosmúr

4 til 5 blöð matarlím
300 g kókospúrra (fæst í Hagkaup)
90 g  svissneskur marengs
270 g rjómi

Sama aðferð og við hina músina og notið afganginn af svissneska marengsinum í kókosmúsina.

 

Takið hringinn/hringana úr frysti, fyllið þá með kóskosmús og frystið aftur.

 

Búið til svissneskan maregs og stífþeytið, smyrjið yfir frosna kökuna og brennið með brennara eða við mjög háan hita inn í ofni í stuttan tíma, skreytið.