Kókos brownies að hætti Jóa Fel
125 g hveiti
2 msk kakó
Salt á hnífsoddi
225 g smjör
110 g súkkulaði 52%
4 stk egg
435 g sykur
1 tsk vanilludropar
5 stk bounty stykki, skorin
80 g kókosmjöl
100 g hvítt súkkulaði
Setjið saman í skál hveiti, kakó og salt. Bræðið saman súkkulaði og smjör yfir
vatnsbaði, hrærið rólega í skálinni og takið af hitanum þegar þetta er vel
blandað. Þeytið saman egg, sykur og vanillu til hálfs, ekki fullþeyta. Takið
þeytarann úr skálinni og blandið hveitiblöndunni saman við með sleikju. Þegar
deigið er komið saman er bounty bitunum, kókosmjölinu og súkkulaðinu blandað
saman við með sleikjunni. Setjið deigið í 28x22 cm form, ferkantað, og bakið við
170°C í ca 45 mín. Kælið svo kökuna og skerið í bita.