KEA kókosdraumur
500 g hreint KEA skyr
3-4 msk strásæta Canderel
1 tsk vanilludropar
1 dl kókosmjólk
1 dl kókosmjöl, léttristað
50 g 70% súkkulaði, fínt saxað
2 ½ dl þeyttur rjómi
Hrærið saman skyri, sætuefni, vanilludropum og kókosmjólk. Léttristið
kókosmjölið á þurri pönnu, kælið það og hrærið því saman við skyrið ásamt söxuðu
súkkulaðinu. Þeytið rjómann og blandið saman við. Hellið búðingnum í skál og
látið standa í 1-3 tíma fyrir notkun.