Kartöfluskyrkaka
Botn:
1 pakki kex (t.d. Homeblest)
50 smjör eða smjörlíki
Kartöflublandan:
400 g soðnar kartöflur (Gullauga)
50 g flórsykur
1 tsk sítrónudropar
Skyrkrem:
500 g vanilluskyr
2 ½ dl rjómi
5 matarlímsblöð
2 egg
1 ½ tsk vanilludropar
1 sítróna
Karamellukrem:
1 dl rjómi
100 g púðursykur
100 g smjör
½ tsk sítrónudropar
Aðferð:
Bræðið smjörið og myljið kexið út í. Hrærið létt saman. Setjið smjörpappír í
botn á smelluformi, 26 sm í þvermál og hellið blöndunni í. Flysjið og stappið
soðnu kartöflurnar og bætið flórsykrinum út í ásamt sítrónudropum. Setjið
blönduna ofan á kexbotninn og þjappið niður. Leggið matarlímsblöð í bleyti í
kalt vatn. Þeytið rjómann og bætið skyrinu út í. Hitið vatn og bræðið
matarlímsblöðin í vökvanum, kælið aðeins. Hellið vökvanum síðan í mjórri bunu
saman við skyrblönduna. Hrærið eggjunum saman við og síðan vanilludropunum.
Rífið niður sítrónubörk, setjið út í og kreistið sítrónusafa út í blönduna.
Setjið skyrkremið ofan á kartöflublönduna og kælið. Útbúið karamellukremið
með því að setja rjómann og púðursykur í pott við vægan hita þar til blandan
verður þykk. Bætið smjöri og sítrónudropum út í og dreifið óreglulega yfir
kökuna.