Kartöflu
súkkulaðikaka
Súkkulaðiblanda:
125 g
súkkulaði (70%)
100 g smjör
4 msk hveiti
3 egg
Kartöflublanda:
3 dl vatn
20 döðlur
200g kartöflur (Rauðar, rifnar á rifjárni)
Hindberjasósa með jarðaberjum:
100 g
hindber
100 g jarðaber
30 g sykur
Bræðið smörið í potti og setjið súkkulaðið út í, hrærið vel í á meðan og hafið hitan ekki of háan. Bætið eggjunum út í , einu og einu í senn og hrærið vel. Því næst er hveitið sett út í. Setjið vatn í pott og döðlurnar og kartöflurnar út í. Sjóðið í 10 mínútur. Látið í matvinnsluvél og maukið. Setjið kartöflublönduna út í súkkulaðiblönduna. Setjið í eldfast mót og í 175C heitan ofn í 10 mínútur.
Sósa:
Hindber, jarðaber og sykur sett í pott og soðið í um 10 mínútur. Sósan borin fram annað hvort heit eða köld með kökunni.
Fróðleikur:
Þessi kaka er algjört lostæti með hindberjasósunni og þeyttum rjóma eða ís. Kakan á að vera fljótandi mjúk í miðjunni. Það er mjög skemmtilegt að setja deigið í alls konar bita lítil silikonmót eða litlar skálar og fá þannig litla hjartalaga kökur eða ýmsar útfærslur sem passa sem eftirréttur fyrir einn. Þá getur þurft að baka hana í örlítið lengri tíma svo hægt sé að ná henni úr mótunum án þess að hún fljóti um allt.