Kartöflu kanilkaka

4 egg
100 g sykur
100 g púðursykur
1 tsk vanilla
300 g rifnar hráar kartöflur (rauðar íslenskar)
240 g hveiti
2 tsk matarsódi
½ tsk salt
1 msk kanill
2 ½ dl matarolía

 

Þeytið saman egg, sykur, púðursykur og vanilludropa í hrærivél þar til blandan verður létt og ljós.Rífið kartöflurnar og blandið saman við, sigtið saman hveiti, matarsóda, salt og kanil og látið út í ásamt matarolíu. Bakið í 2 smurðum formum við 175 gráður í ½ klukkustund (eða nokkrum litlum formum)

 

Krem:
400 g rjómaostur
½ dós sýrður rjómi
80 g flórsykur
1 tsk vanillusykur

 

Hrærið rjómaostinn í hrærivél þar til hann er mjúkur og sléttur. Hrærið sýrða rjómann út í ásamt flórsykri og vanillusykri. Hrærið þar til kremið verður létt. Setjið á milli botnanna og ofan á kökuna, eða smyrjið litlu formin.

 

Hindberjasósa með jarðaberjum:
100 g hindber
100 g jarðaber
30 g sykur

 

Hindber, jarðaber og sykur sett í pott og soðið í um 10 mínútur. Sósan borin fram annað hvort heit eða köld með kökunni.

 

Fróðleikur:

Þessi kaka er mjög mjúk og er góð í viku frá því hún er gerð. Gott er að hafa ýmist hindber, jarðaber, rifsber, kókosflögur eða ristaðar hnetuflögur ofan á henni.