Kaka með kasjúkremi og ferskum ávöxtum
150 g heslihnetur, malaðar
150 g spelt, nota má fínt og gróft til helminga
2 msk hreint kakóduft eða karob-duft (má sleppa)
2 tsk vínsteinslyftiduft
1/2 tsk vanilluduft
sjávarsalt á hnífsoddi
3-4 bananar, afhýddir og skornir í bita
250 g döðlur, frekar smátt saxaðar
1/2-1 tsk sítrónusafi
Hitið ofninn í 180°C. Blandið þurrefnunum saman í skál.
Setjið bananana, döðlurnar og sítrónusafa í matvinnsluvél og maukið þar til
þetta verður aðeins freyðandi. Blandið bananablöndunni varlega saman við
þurrefnin með sleif.
Setjið í smurt form (sniðugt er að strá dálitlu kókosmjöli á botninn) og bakið í
u.þ.b.15 mínútur.
Kasjúkrem
2 1/2 dl kasjúhnetur
1/4-1/2 dl vatn /byrjið á að nota helminginn og bætið svo við eftir þörfum so að
kremið verði ekki of þunnt)
1 dl agave síróp eða hlynsíróp
1/2 tsk vanilluduft
Setjið allt hráefnið í blandara og blandið þar til kremið verður silkimjúkt. Smyrjið kreminu ofan á kökuna og skreytið með framandi ávöxtum. Veljið 4-5 tegundir af framandi ávöxtum t.d. granatepli, ferskar fíkjur, drekaávöxt,kaktusfíkjur, broddmelónu, kívanó, kumquat, limequat og stjörnuávöxt. Sumum finnst gott að strá örlitlum vanillusykri yfir.