Kaffismjörkaka

 

Uppskrift:

_ 200 g ristaðar, afhýddar heslihnetur, fínmalaðar í matvinnsluvél

_ 125 g sykur

_ 1 msk. kartöflumjöl

_ 6 stífþeyttar eggjahvítur

_ ¼ tsk. cream of tartar

Fínmöluðum, ristuðum heslihnetunum er blandað saman við sykurinn og kartöflumjölið.

Þegar eggjahvíturnar eru vel stífþeyttar er bætt út í þær ¼ tsk. tartar.

Þá er þurrefnunum hrært rólega saman við eggin.

Þá teiknar maður tvo hringi á bökunarpappír og skiptir blöndunni í tvennt á hringana tvo.

Þetta er svo bakað við 175 gráður í fimmtán til tuttugu mínútur þar til kominn er fallegur litur á kökurnar.

Fylling:

_ 6 eggjarauður

_ 6 msk. sykur

_ ½ tsk. vanilludropar

_ 450 g smjör, skorið í bita

_ 2 msk. instant-kaffi

_3 msk. kaffilíkjör

Eggjarauður og sykur þeytt saman. Smjöri og vanilludropum bætt út í og þeytt áfram. Blönduna þarf

að þeyta vel. Að síðustu eru tvær matskeiðar af skyndikaffi leystar upp í þremur matskeiðum af kaffilíkjör.

Kreminu er sprautað á neðri botninn, einn hring. Þar ofan á er settur þeyttur rjómi sem í hefur verið blandað tveimur matskeiðum

af flórsykri og hálfri teskeið af vanilludropum.

Þá er hinn botninn settur ofan á og kreminu sprautað í doppum allan hringinn, eins og sést ámyndinni. Loks er flórsykri sáldrað yfir miðjuna.

Kaffismjörkaka