Jólamúffur
3 egg
1 bolli melassi
1 bolli púðursykur
3 1/2 bolli hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. negull
1 tsk. engifer
1 tsk. kanill
220 g smjör, brætt
1 bolli heitt vatn
Öllu hrært saman í deig, og hellt í múffuform. Bakað í 180 gráðu heitum ofni í
20 til 25 mínútur. Deigið geymist í allt að tvær vikur í kæli.
Krem
Rjómaostur
Sítrónusafi
Rifinn appelsínubörkur
Flórsykur
Rauður matarlitur
Hrærið flórsykurinn saman við rjómaostinn smám saman, en það fer eftir smekk
hvers og eins hversu mikinn flórsykur þarf að nota. Að lokum er sítrónusafa og
appelsínuberki blandað saman við. Best er að blanda sítrónusafanum við smám
saman í og smakka kremið til. Rauðum matarlit er bætt út í. Kremið er borið á
múffurnar með rjómasprautu. Þess má geta að þeir sem hafa meira gaman af
því að skreyta en að baka geta farið auðveldu leiðina, bakað Betty Crocker-múffur
og keypt hvítt krem frá sama fyrirtæki, sett rauðan matarlit út í og skreytt
múffurnar.
