Jarðaberjaostakaka
Innihald
200 g af digestive-kexkökum sem brotnar eru í bita
100 g brætt smjör
500 g af ricotta-osti
börkur af tveimur sítrónum og þrjár matskeiðar af sítrónusafa
eggjarauður úr þremur stórum eggjum
tvær matskeiðar símiljumjöl
225 g af jarðarberjum
þrjár matskeiðar af jarðarberjasultu
Aðferð
Til að byrja með skal hita ofninn í 160 gráðu hita á blæstri og taka til 20 cm
kökuform sem deig festist ekki við. Setjið kexkökurnar í matvinnsluvél til að
brjóta þær niður í hæfilega stóra bita og blandið síðan
smjörinu út í og látið hrærast saman í örskamma stund. Þrýstið þessari blöndu
síðan ofan í formið. Því næst er gott að skola af matvinnsluvélinni og hnífnum
áður en ricotta-osturinn, sítrónubörkurinn og safinn, sykurinn, eggjarauðurnar
og símiljumjölið er sett út í og blandað vel saman. Skreytt með jarðarberjum
Setjið blönduna ofan á botninn og bakið kökuna í 35 til 45 mínútur. Látið kökuna
kólna í um klukkutíma og notið tímann á
meðan til að skera jarðarberin í helminga og undirbúa jukkið sem fer ofan á
kökuna. Bræðið saman sultuna og þrjár matskeiðar af vatni á meðalhita þangað til
blandan er orðin nokkuð þunn. Setjið hana síðan í skál
og veltið jarðarberjunum upp úr. Takið kökuna úr forminu og setjið
jarðarberjablönduna ofan á. Kökuna má frysta og eiga þannig tilbúna sem meðlæti
með kaffinu þegar gesti ber að garði.
