Hvít súkkulaðikaka

250 g smjör

140 g niðurskorið hvítt súkkulaði

250 ml mjólk

1 tsk. vanillu-essens

250 g hveiti

¼ tsk. natrón

300 g sykur

2 stór egg létt þeytt saman Krem

300 g rjómaostur

85 g smjör

100 g flórsykur

heslihnetur eða lítil páskaegg til skreytingar


Aðferð: Hitið ofninn í 160 gráðu hita og smyrjið eða setjið bökunarpappír í 23 cm kökuform. Hrærið saman á vægum hita smjörið, súkkulaðið og vanillu-essens þar til súkkulaðið hefur bráðnað. Blandið saman þurrefnunum í skál og bætið síðan hinu saman við ásamt eggjunum og smá salti. Bakið kökuna í um klukkustund eða þar til hún hefur fengið á sig fallega gullinn blæ og fylgist vel með henni meðan á bakstri stendur. Kremið er gert með því að blanda saman rjómaostinum, smjöri og flórsykri þar til það er orðið mjúkt. Smyrjið yfir kökuna þegar hún er orðin köld og skreytið á páskalegan hátt.