Hveitilaus súkkulaðikaka
175 g smjör, lint
125 g sykur
250 g dökkt súkkulaði
4 egg, aðskilin
100 g möndlur, malaðar
100 g heslihnetur, malaðar (má nota möndlur eða hnetur eingöngu)
1/2 bolli (125 ml) litlir sykurpúðar (mini-marshmallows)
Ofninn hitaður í 180 gráður og fremur stórt eða
meðalstórt springform smurt
og pappírsklætt. 125 g af smjörinu hrærð létt og ljóst með sykrinum. 150 g
af súkkulaðinu brædd í vatnsbaði eða örbylgjuofni, látið kólna ögn og síðan
hrært saman við ásamt eggjarauðunum og síðan möluðu möndlunum og hnetunum.
Eggjahvíturnar stífþeyttar, 2-3 msk af þeim hrært rösklega saman við deigið
og síðan er afganginum blandað saman við með sleikju. Sett í formið, jafnað
og bakað í ujm hálftíma, eða þar til kakan er farin að losna frá börmunum og
prjónn sem stungið er í hana kemur hreinn út. Látin kólna dálitla stund á
grind og síðan loskuð gætilega úr forminu og látin kólna alveg. Afgangurinn
af súkkulaðinu bræddur og síðan er það tekið af hitanum, sykurpúðarnir
settir út í og hrært áfram þar til þeir eru bráðnir. Smjörinu bætt út í og
hrært þar til kremið er slétt. Þá er því smurt á kalda kökuna.