Hollar múffur
2 bollar hveiti
1 1/3 bolli hrásykur
2 tsk. lyftiduft
2 tsk. kanill
1/4 tsk. múskat
1/2 tsk. salt
2 bolli rifnar gulrætur
1/4 bolli rúsínur
1/2 bolli saxaðir valhnetukjarnar
1/2 bolli kókosmjöl
1/2 bolli afhýðað, rifið epli
3 stór egg
3/4 bolli olía
1/4 bolli appelsínusafi
2 tsk. vanillusykur
Hrærið saman gulrótum, rúsínum, hnetum, kókosmjöli og epli í skál. Hrærið
eggjum, olíu, appelsínusafa og vanillusykri saman í
annarri skál. Blandið öllu vel saman og setjið í múffu-álbakka. Stillið ofninn á
175 gráður og bakið á blæstri í 35 mínútur.
Látið múffurnar kólna í fimm til tíu mínútur og takið þær svo úr bakkanum og
látið kólna lengur.