Hnetusmjörs-bananakökur
75 g smjör
ca. 150 ml hnetusmjör, gróft (crunchy)
200 g sykur
2 mjög vel þroskaðir bananar
175 g hveiti
3/4 tsk matarsódi
1/2 tsk lyftiduft
1/4 tsk salt
Ofninn hitaður í 180 gráður. Smjör, hnetusmjör
og sykur þeytt saman.
Bananarnir skornir í bita, stappaðir og hrært saman við (einfaldast er að
setja allt saman í matvinnsluvél og láta hana ganga þar til blandan er
slétt). Hveiti, matarsóda, lyftidufti og salti blandað saman og hrært saman
við. Sett með tveimur teskeiðum á pappírsklæddar bökunarplötur, 12-16 kökur
á hverja plötu (þetta verða svona 40-50 kökur alls). Sett í ofninn og bakað
í 10-12 mínútur, eða þar til kökurnar eru farnar að taka lit. Látnar kólna í
2-3 mínútur á plötunni og síðan færðar yfir á grind.