Hnetusmjörsnammi

½ bolli sojamjólk
½ bolli hlynsíróp eða agavesíróp
½ bolli hnetu- eða möndlu­smjör
2 bollar haframjöl
½ bolli rúsínur
Fersk vanilla


Setjið sojamjólk, síróp og smjör í pott og látið suðu koma upp. Hrærið þar til blandan er mjúk. Blandið öllu saman, búið til kúlur og veltið upp úr ristuðum, möluðum möndlum eða hnetum. Kælið.