Hnetusmjörs-hafrahringjamúffur
75 g smjör
100 g púðursykur
75 g ljóst síróp
100 g hnetusmjör
5 dl Cheerios eða Honey-Nut Cheerios
100 g mjólkursúkkulaði
Smjör, púðursykur og síróp sett í pott, hitað
og hrært þar til allt er
bráðið og samlagað. Látið sjóða í 2-3 mínútur en síðan er potturinn tekinn
af hitanum og hnetusmjörinu hrært saman við. Þegar blandan er alveg slétt er
Cheeriosinu hrært saman við. Látið bíða í nokkrar mínútur. Súkkulaðið skorið
í bita og hrært saman við - það á helst ekki að bráðna alveg, heldur eiga að
vera greinilegir bitar. Blöndunni er svo mokað með matskeið í 12-16
pappírsmúffuform. Látið kólna alveg.