Hnetubitar með kornfleksi
1/2 l kornfleks
100 ml matarolía
200 ml hnetusmjör (helst gróft (crunchy))
75 g púðursykur
2 egg
1 tsk vanilluessens
100 g hveiti
50 g valhnetukjarnar, grófmuldir (nota má heslihnetur eða saxaðar möndlur)
50 g rúsínur
Ofninn hitaður í 170 gráður. Kornfleksið sett í
matvinnsluvél og mulið í
grófa mylsnu (einnig má hella því í plastpoka og mylja með kökukefli). Hellt
í skál og geymt. Matarolía, hnetusmjör, púðursykur, egg og vanilluessens
hrært þar til blandan er slétt. Hveiti og kornfleksi blandað saman og hrært
saman við ásamt hnetum og rúsínum. Ferkantað kökuform eða eldfast form klætt
með bökunarpappír (ég notaði form sem var 24x24 cm en það er ekki heilög
tala), deiginu jafnað í það og sléttað með sleikju. Sett í ofninn og bakað í
um 25 mínútur, eða þar til yfirborðið hefur stífnað. Þá er kakan tekin út og
látin kólna. Skorin í 16 ferninga eða lengjur á meðan hún er volg.