Hjónabandssæla Kötu

100 g hafragrjón
100 g hveiti
80 g púðursykur
1 tsk. lyftiduft
1 tsk.kanill
120 g lint smjörlíki eða smjör
sulta eða ber

Öllu blandað saman, annaðhvort hnoðað með höndunum eða sett í matvinnsluvél. 3/4 af deiginu þrýst í eldfast mót. Svo er sett sulta eða ber, til dæmis rabarbara-, bláberja- eða jarðarberjasulta, apríkósumarmelaði og frosin hindber með smá agave-sýrópi. Það er bara um að gera að prófa sig áfram. Svo er restin af deiginu tætt yfir. Þetta er bakað í ca 25 mínútur við 170° C. Best volgt með þeyttum rjóma. Ef notuð eru ber er þetta líkara böku, þá má líka minnka hlutfallið af haframjöli og setja meira hveiti. Þetta er fljótlegt, tekur ekki nema 5 til 10 mínútur frá því maður byrjar þar til bakan er komin í ofninn. Þetta er líka hráefni sem flestir eiga.