Himnesk
súkkulaðikaka
Botn:
300 g
suðusúkkulaði
130 g ósaltað smjör, lint
6 egg, 2 heil og 4 sem búið er að skilja
175 g sykur
Fylling:
500 ml
rjómi
1 tsk vanilluessins
1 msk Contreau líkjör (má sleppa)
kakóduft til skreytingar
Bræðið
súkkulaðið yfir vatnsbaði og látið smjörið bráðna í súkkulaðinu. Hrærið saman
tvö egg, fjórar eggjarauður og 75 g af sykri og blandið hrærunni saman við
súkkulaðiblönduna.
Þeytið
fjórar eggjahvítur uns þær eru orðnar að froðu, setjið þá afganginn (100 g) af
sykrinum út í og haldið áfram að þeyta þar til hræran er orðin miðlungsstíf.
Blandið
eggjahvítuhrærunni í litlum skömmtum saman við súkkulaðiblönduna.
Hitið
ofninn í 180°C. Klæðið botninn á hringformi, sem er 23 sm í þvermál, með
bökunarpappír og hellið deiginu í formið, bakið í 50 mínútur eða þar til kakan
hefur lyft sér og sprungur myndast í henni. Kælið kökuna í forminu en í
kjölfarið sígur hún yfirleitt í miðjunni og er það fullkomlega eðlilegt.
Hálfþeytið
rjómann, bætið vanilluessins og líkjör út í hann og fullþeytið. Fyllið miðjuna á
kökunni með þeytta rjómanum og sáldrið kakóduftinu yfir og skreytið með ferskum
ávöxtum.