Himnesk gulrótarkaka með súkkulaði
frá Sollu á Grænum kost


250 rifnar gulrætur
100 g möndlur, þurristaðar og malaðar (t.d. í matvinnsluvél)
325 g spelt, gott að hafa fínt og gróft til helminga
2 tsk vínsteinslyftiduft
1 tsk kanilduft
1/2 tsk engiferduft
1/4 tsk kardimommuduft
himalaya_ epa sjávarsalt á hnífsoddi
100 g gróft saxaðar lífrænar döðlur
2 dl kaldpressuð kókosolía
1 1/2 dl agave síróp
2-3 egg

Hitið ofninn í 180°C og smirjið kökuform, t.d. með kókosolíu, og stráið sesamfræjum eða kókosmjöli í botninn.
Setjið rifnar gulrætur, malaðar möndlur, spelt, lyftiduft, kanilduft, engiferduft, kardimommuduft, salt og saxaðar döðlur í sklál og blandið saman með sleif.
Setjið kókosolíu og agave síróp í hrærivél eða matvinnsluvél og þeytið vel saman, bætiið eggjunum út í, einu í einu, og blandið vel í 5-10 mín.
Hrærið blönduna varlega saman við mjölið og setjið diegið síðan í smurt form og bakið við 180°C í um 45-55 mín.

Súkkulaði
1 1/4 dl hreint kakóduft
3/4 sl kaldpressuð kókosolía
1/2 sl agave síróp
1/2 tsk vanilluduft

Allt sett í skál og hrært saman. Síðan er kreminu hellt yfir kökuna.
Gott er að bera kökuna fram með rauðu ávaxtasalati og þeyttum rjoma.

Rautt ávaxtasalat
1/2 askja jarðaber
1/2 granatepli
1/2 askja rifsber

Skolið jarðaberfin og skerið þau í tvennt eða fernt og setjið í skál.
Skerið granateplið í tvennt, takið steinana innan úr því og setjið í skálina.
Skolið rifsberin og bætið þeim saman við. Blandið þessu saman og berið fram.
Ef þið notið þetta salat með gulrótarkökunni þá er mjög smart að setja það með fram kökunni á kökudiskinn.
sesamfræ eða kókosmjöl.