Heslihnetuknús

1 bolli fínt malaðar heslihnetur
1 bolli fínt malað haframjöl
1 bolli sigtað, ljóst spelt
¼ tsk. salt
½ tsk. kanill
½ bolli ólífuolía
½ bolli hlynsíróp
½ bolli sojamjólk

Búið til kúlur, þrýstið ofan á miðju þeirra og búið til holu sem síðan er fyllt með sykurlausri sultu; hvaða bragðefni sem er, svo lengi sem það er í uppáhaldi. Bakið við 175°C í 25 mínútur. Þessar geymast vel í frysti.