Heit súkkulaðikaka

200 g smjör
200 g suðusúkkulaði
4 egg
2 dl sykur
2 1/2 dl hveiti
1 tsk lyftiduft

Stífþeytið egg og sykur. Sigtið hveitið og lyftiduft og blanda varlega saman með sleikju. Setjið deigið í smurt eldfast mót.
Bræðið súkkulaði og smjör saman og kælið aðeins. Hellið súkkulaðiblöndunni í mjórri bunu yfir deigið hér og þar. Bakið í 15 - 20 mínútur við 180°C og berið fram með vanilluís.