Heilhveitivöfflur með heitri súkkulaðisósu og rjóma

1 1/2 bolli hveiti
1/2 bolli heilhveiti
2 msk sykur
1/2 tsk salt
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
2 egg
3-4 dl mjólk
70 g smjör
1 tsk vanilla

Blandið saman þurrefnunum og hrærið út með hluta af mjólkinni. Blandið eggjunum saman við og hrærið vel. Bræðið smjörið og blandið saman við.
Þynnið að síðustu með því sem eftir er af mjólkinni. Bætið mjólk við ef þarf. Bakið vöfflurnar og berið fram volgar með linþeyttum rjóma og heitri súkkulaðisósu eða kaldri íssósu. Einnig er gott að bera ís með.