Hátíðar-súkkulaðimuffins

 

90 g suðusúkkulaði

1½ bolli heitt kaffi

3 bollar sykur

2½ bolli hveiti

1½ bolli kakó

2 tsk. matarsódi

¾ tsk. lyftiduft

1¼ tsk. salt

3 stór egg

¾ bolli matarolía

1½ bolli súrmjólk

¾ tsk. vanilludropar

 

Bræðið súkkulaði í heitu kaffinu. Sigtið saman öll þurrefni. Þeytið egg þar til þau verða létt og ljós. Bætið olíu, súrmjólk, vanilludropum og bræddri súkkulaðiblöndu saman við egg og hrærið vel. Blandið þurrefnum saman við eggjablöndu og hrærið vel. Setjið í muffinsform og bakið við 150 gráður í um 20-30 mínútur. Þetta er frekar stór uppskrift og því ágætt að helminga hana ef veislan er ekki stór.

 

KREM

½ bolli vatn

1 bolli sykur

1 msk. síróp

2 eggjahvítur

1 tsk. vanilludropar

Sjóðið saman vatn, sykur og síróp. Á ekki að bullsjóða, heldur hitna þar til blanda fer aðeins að þykkna. Eggjahvítur eru stífþeyttar og vanilludropum blandað saman við. Svo er sykurblöndu hellt í örmjórri bunu saman við eggjahvítur og þeytt á fullum hraða á meðan. Mikilvægt er að hella í örmjórri bunu svo kremið þykkni nægilega. Svo má bæta matarlit út í og hafa krem í hvaða lit sem er.