Hálfmánar

500g hveiti
300 g smjörlíki
200 g sykur
2 egg
2 tsk lyftiduft
2 tsk hjartasalt
1 tsk vanilludropar
sveskjusulta eða rabbbarasulta

Smjörlíki og sykur er hrært saman. Eggjum blandað saman við og loks þurrefnum ásamt vanilludropum.Deigið er hnoðað, gott er að láta það standa í kæli í þrjá tíma áður en það er flatt út.
Deigið er síðan flatt út og kökur mótaðar ca 6-8 cm í þvermál. Sultan er sett í miðjuna og þeim lokað til helminga.
Best er að nota gaffal til að loka fyrir og þrýsta deiginu saman. Penslið síðan yfir kökurnar með eggi.
Bakið við 180-200°C í ca 6-10 mínútur, allt eftir gerð ofna.