Hafrakökur

Nýbakaðar hafrakökur eru góðar í haustrigningunum. Út í þessa grunnuppskrift má bæta nánast hverju sem er sem gæti farið vel með kökunum; valhnetur, rúsínur, súkkulaðibitar eða kókosflögur, allt þetta gæti bragðast vel.

1 bolli mjúkt smjör
1 bolli sykur
1 bolli púðursykur
2 egg
1 tsk. vanilludropar
2 bollar hveiti
1 matarsódi
1 tsk. salt
1½ tsk. kanill
3 bollar haframjöl

Þeytið saman smjör, sykur og púðursykur. Þeytið eitt egg í einu saman við og hrærið vanilludropum saman við. Blandið saman hveiti, matarsóda, salti og kanil og hrærið saman við eggjablönduna. Blandið haframjöli saman við, þekið og kælið í minnst 1 klst. Hitið ofninn í 190° C. Rúllið deiginu í litlar kúlur og komið fyrir á bökunarpappír á bökunarplötu. Fletjið hverja kúlu varlega út með gaffli. Bakið í 8-10 mínútur. Leyfið kökum að kólna á bökunarplötunni í um 5 mínútur áður en þær eru færðar yfir á grind til að kólna alveg.