Gulrótakaka með rúsínum
100 g smjör, lint
100 g sykur
2 egg
225 g hveiti
2 egg
1 tsk matarsódi
1/2 tsk kanell
1/2 tsk engifer (má sleppa og nota meiri kanel)
250 g gulrætur, rifnar fínt
100 g rúsínur
100 g möndlur, heslihnetur eða pistasíuhnetur, saxaðar
Ofninn hitaður í 180 gráður. Smjör og sykur
hrært ljóst og létt og síðan er
eggjunum þeytt saman við, öðru í senn. Hveti, matarsóda og kryddi hrært
saman við og síðan gulrótum, rúsínum og möndlum eða hnetum. Jafnað í
meðalstórt tertuform með háum börmum og bakað í 45-55 mínútur, eða þar til
kakan hefur lyft sér vel og er svampkennd.