Gulrótakaka með hlynsíróps-ostakremi

2 bollar hveiti
2 tsk matarsódi
1 tsk salt
1 tsk kanell
2 bollar sykur
1 1/4 bolli repjuolía (canola)
4 stór egg
3 bollar rifnar gulrætur (sennilega best að rífa þær fremur fínt)
1 1/4 bolli valhnetur, gróft saxaðar
2 msk ferskur engifer, saxaður smátt

Svo er það kremið:
Hlynsíróps-ostakrem

275 g rjómaostur, mjúkur
75 g smjör, lint
2 1/2 bolli flórsykur
1/4 bolli hlynsíróp

Ofninn hitaður í 180 gráður og tvö meðalstór tertuform smurð og
pappírsklædd. Hveiti, matarsódi, salt og kanell hrært saman í skál. Sykur og
olía hrært saman í annarri skál (eða í hrærivél) og eggjunum hrært saman
við, einu í einu. Hveitiblöndunni hrært saman við og síðan gulrótum, hnetum
og engifer. Deiginu skipt í formin og síðan eru kökurnar settar í ofninn og
bakaðar í um 40 mínútur, eða þar til prjónn sem stungið er í þær miðjar
kemur hreinn út. Látnar kólna í forminu í um 15 mínútur en síðan hvolft á
grind og látnar kólna alveg.

(Mér finnst þeir hjá Bon Appetit stundum vera með fullstuttan bökunartíma í
uppskriftunum svo að ég mundi ekki taka kökuna út fyrr en ég væri viss um að
hún er bökuð.)
Svo er það kremið:
Hlynsíróps-ostakrem
1/4 bolli hlynsíróp