Gulróta-hunangskaka
2 egg
100 g hunang
4 msk olía
150 ml súrmjólk eða hrein jógúrt
250 g gulrætur, rifnar
50 g möndlur, malaðar
125 g hveiti
2 tsk kanell
1/2 tsk matarsódi
salt á hnífsoddi
Ofninn hitaður í 160 gráður. Egg og hunang
þeytt saman. Olíunni bætt út í og
síðan súrmjólkinni eða jógúrtinni og hrært vel. Gulrótunum hrært saman við
og að lokum er möndlum, hveiti, kanel og salti blandað saman og hrært saman
við. Best er að hræra ekki of mikið eftir að þurrefnin eru sett út í en
deigið á þó að vera alveg slétt. Hellt í smurt jólakökuform, ekki mjög
stórt, og bakað í um 1 klst, eða þar til kakan er svampkennd viðkomum og
prjónn sem stungið er í hana kemur hreinn út. Látin kólna í forminu og síðan
hvolft á grind.