Góð gulrótarkaka
4 egg
1 ¼ bolli grænmetisolía
2 bollar sykur
2 tsk. vanilludropar
2 bollar hveiti
2 tsk. matarsódi
2 tsk. lyftiduft
½ tsk. salt
2 tsk. kanill
3 bollar rifnar gulrætur
1 bolli saxaðar pekanhnetur
Krem:
½ bolli mjúkt smjör
225 g mjúkur rjómaostur
4 bollar flórsykur
1 tsk. vanilludropar
1 bolli saxaðar pekanhnetur
Hitið ofninn í 175 °C og smyrjið kökuform. Hrærið saman egg, hvítan sykur og 2
tsk af vanilludropum í stórri skál. Blandið hveiti, matarsóda, lyftidufti, salti
og kanil saman við. Hrærið gulræturnar út í
og blandið pekanhnetum saman við ef vill. Hellið í formið og bakið í 40-50
mínútur, þar til tannstöngull sem stungið er í miðjuna kemur hreinn út. Kælið í
forminu í um 10 mínútur og þar eftir á grind. Setjið
smjör, rjómaost, flórsykur og vanilludropa í skál og hrærið þar blandan er
slétt. Bætið hnetum í ef vill. Berið á kalda kökuna.
