Frönsk súkkulaðikaka (Jóa Fel)

135 g sykur
250 g súkkulaði
160 g smjör
vanilla
4 stk eggjarauður
4 stk eggjahvítur
35 g hveiti

 

Takið 15 prósent af sykrinum til að nota síðar. Byrjið að setja súkkulaði, afgang af sykri og smjör í pott og setjið yfir lágan hita. Hrærið reglulega í svo ekki brenni við botninn. Þegar sykurinn og smjörið er komið saman takið af hitanum og bætið vanillu samn við. Aðskiljið eggin, rauðurnar fara ein og ein í súkkulaðiblöndu. Hrærið vel í á milli. Stífþeytið svo eggjahvíturnar með 15 af sykri og blandið saman við með sleikju.

Best er að baka kökuna í lausbotna formi, sem er búið að fita vel og jafnvel sykra lítillega, við 160°C í um það bil 35 til 45 mínútur. Gott er að láta kökuna kólna aðeins áður en hún er losuð úr forminu.

 

Vanillusósa

1 tsk vanillustöng
5 dl mjólk
40 g smjör
4 stk eggjarauður
10 g maísenamjöl
125 g sykur

 

Skafið kornin úr vanillustönginni, setjið í skál 1 dl af mjólk, maísenamjöl, 60 g af sykri og hrærið saman. Setjið svo restina af mjólk, smjör, vanillukornin og afganginn af sykri í pott og hitið upp að suðu. Hellið svo eggjablöndunni saman við og hrærið stöðugt í pottinum. Má alls ekki sjóða. Kælið svo sósuna og berið fram með kökunni.