Frönsk súkkulaðikaka:
4
egg
2
dl sykur
200
g smjör
200
g súkkulaði (1 plata suðusúkkulaði
og 1 plata 70 prósent
súkkulaði)
1dl
sigtað hveiti
Egg og sykur er þeytt saman þar til blandan verður ljós og ekki finnast lengur
sykurkorn í blöndunni.
Næst er súkkulaðið brætt yfir vatnsbaði og látið kólna eilítið.
Svo er súkkulaðinu blandað saman við eggjablönduna og 1 dl af sigtuðu hveiti
bætt við.
Athugið að nota sleif þegar öllu er blandað saman svo loftið haldist í deiginu.
Bakað í 26 tommu formi við 170 gráður í 35 mín.
Krem:
70
g smjör
150
g súkkulaði (til dæmis 100 g 70 prósenta súkkulaði og 50 g
af suðusúkkulaði)
2
msk. Lyle´s síróp (bökunarsíróp)
Allt brætt saman í potti og sett yfir kökuna eftir að hún er orðin köld.
