Franskar makkarónur
150 g möndlumjöl (möndlur
hakkaðar í matvinnsluvél)
150 g flórsykur
2 eggjahvítur
150 g sykur
100 g vatn
2 eggjahvítur
20 g sykur
Blandið möndlumjöli, flórsykri og eggjahvítum saman í skál þar til það er orðið
að jöfnum massa. (Hér er hægt að blanda duftmatarlit við massann til að ná fram
lituðum makkarónum. Mikilvægt er að nota ekki fljótandi matarlit!) Setjið sykur
og vatn saman í pott og sjóðið í síróp. Látið blönduna verða um það bil 113°C ef
hitamælir er hafður við hönd. Sjóðið annars þar til gufa hættir að koma upp úr
pottinum. Þeytið eggjahvítur og sykur saman í þéttan massa í hrærivél. Blandið
síðan sírópinu hægt saman við og þeytið þar til marengsinn verður kaldur
(rúmlega stofuhiti). Blandið marengs og möndlumassanum nú saman. Setjið í
sprautupoka og sprautið litlar makkarónukökur á bökunarplötu. Látið
makkarónurnar síðan þorna í um það bil 30 mínútur, áður en þær eru bakaðar í
forhituðum ofni í 12 til 16 mínútur við 140°C.
FERSKUR ÁVAXTA/BERJAGANAGE (Fylling í makkarónur):
100 g rjómi (ekki matreiðslu rjómi)
25 g glúkósi
215 g „ósvikið“ hvítt súkkulaði
95 g ávaxtamauk (niðursoðnir ávextir með 10 prósent sykri; nota má hvaða ávöxt
sem er) Setjið rjóma og glúkósa í pott og hitið að suðu. Hellið því síðan yfir
súkkulaðið og hrærið saman þar til súkkulaðið er alveg bráðið. Blandið
ávaxtamaukinu saman við í. Gott er að notast við töfrasprota þegar þessu er
blandað saman. Setjið síðan í kæli og látið kólna þar til þetta fer að taka sig.
Þá er hægt að smyrja fyllingunni á milli makkarónanna.
