Franska súkkulaðikakan hennar Hörpu

Bræðið saman í potti:
200g Nóa-konsúm suðusúkkulaði
200g sykur
1 1/4 dl sterkt kaffi
Þetta má sjóða létt í pottinum.

Síðan er 200g af smjöri (ekta í silfurpappírnum) bætt út í-ekki láta sjóða, bara bráðna létt út í.
Blandan er kæld í ísskáp.
Þá eru 3 stífþeyttum eggjum bætt við blönduna, hrært út í pottinn.

Klæðið kringlótt form með bökunarpappír og setjið 100g af hökkuðum möndlum í botninn (fæst í búð pakki með 100g af hökkuðum möndlum).

2-3 matskeiðum af koníak eða grand mariner hellt yfir möndlurnar (ég persónulega sleppi því, smekksatriði).Að lokum er blöndunni hellt yfir möndlurnar (blandan er þunn, í vökvaformi, það er eðlilegt).

Bakist í 45 mínútur á 180°
Bera fram með þeyttum rjóma