Frangepane-terta með nektarínum
Bökuskel:
200 g hveiti
125 g smjör
1 msk sykur
tvisvar milli fingra af salti
1 msk ískalt vatn
Fylling:
100 g möndlur
100 g sykur
1 msk hveiti
80 g mjúkt smjör
1 egg
nokkrir möndludropar
milli fingra af salti
2-3 nektarínur, skornar í þunna báta
1/2 dl af apríkósu- eða appelsínumarmelaði, sigtað
Hveiti, smjöri, sykri og salti er blandað saman í matvinnsluvél þangað til
blandan líkist grófri mylsnu. Án þess að slökkva á vélinni er vatninu bætt út í
og allt hnoðað saman þangað til það myndar kúlu.
Kúlan er kæld í 15-20 mín í kæliskáp. Deigið er síðan skorið í sneiðar sem er
raðar í bökunarform og þrýst saman.
Þetta er mun einfaldara en að reyna að fletja deigið út, þar sem það er frekar
lint.
Bökunarformið er síðan geymt í kæli á meðan fyllingin er útbúin.
Hitið ofninn í 180°C
Möndlur, sykur, hveiti og salt er malað í duft í matvinnsluvél.
Smjörinu bætt út í og hrært þar til þetta samlagast. Þá er egginu og dropunum
bætt saman við og allt hrært saman.
Fyllingunni er smurt yfir botninn og nektarínusneiðum raðar fallega yfir. Þetta
er bakað í 20-30 mínútur eða þar til skelin er gyllt.
Meðan kakan kólnar er hún pensluð með marmelaðinu.