Fljótlegar súkkulaðikúlur
Einfaldar og fljótlegar konfektkúlur sem má útfæra á ýmsan hátt.
1/3 bolli rjómi
110 grömm fínt saxað súkkulaði
½ bolli kakó
Hitið rjómann að suðu. Setjið saxað súkkulaðið í skál og hellið heitum rjómanum
yfir. Hrærið þar til súkkulaðið er bráðið. Látið kólna og harðna. Mótið síðan
kúlur úr blöndunni og rúllið upp úr kakódufti.