Fljótleg ostakaka
fyrir fjóra


8 Homblest kex
250 g rjómaostur
3 dósir hreint jógúrt
2 msk flórsykur
2 öskjur hindber
mintublöð

Aðferð: Hitið ofninn að 200C. Myljið kexið á smjörpappírslagða ofnplötu og ristið í 2-3 mínútur. Hrærið saman rjómaostinn, jógúrtið og flórsykurinn. Setjið hluta af kexmulningnum í botninn á fallegu glasi og 1-2 matskeiðar af rjómaostablöndu ofan á og raðið hindberjum ofan á.
Setjið svo kexmulning ofan á og rjómaostablöndu yfir og hindber þar ofan á og svo koll af kolli þar til hráefnið er uppurið. Fallegt er svo að skreyta með ferskum mintublöðum.