Fljótleg fljótandi ostakaka

1 pakki rjómaostur
5-6 msk flórsykur
¼ l rjómi

1 poki frosin skógaberjablanda (notið berin frosin)
1 stór pakki súkkulaðirúsínur (250 g)

70 g smjör
2/3 pakki hafrakex eða annað gott gróft kex
um 15 makkarónukökur

Fersk ber til skrauts

Aðferð:
Þeytið saman rjómaosti og flórsykur. Þeytið rjómann og blandið honum saman við. Bræðið smjör á pönnu, myljið kexið vel, setjið það á pönnuna og hrærið vel í  (blandan verður laus í sér). Látið kóna. Myljið makkarónukökurnar gróft og bætið út í. Setjið í glerskál í lögum; kex, ostakrem, ber og súkkulaðirúsínur, endurtakið einu sinni til tvisvar. Takið bestu berin frá og setjið efst í skálina til skrauts eða skreytið með ferskum berjum.