Fín súkkulaðikaka
200 g smjör
225 g sykur (2 1/2 dl)
4 egg
200 g suðusúkkulaði (mæli með fína suðusúkkulaðinu frá Lindor)
90 g hveiti (1 1/2 dl)
1 msk kaffiduft
Hjúpur (má sleppa)
150-200 g suðusúkkulaði
1-2 msk olía eða kókosfeiti
Bræðið smjörið varlega í potti. Það má ekki
sjóða. Takið pottinn af og
hrærið sykri í. Skiljið að eggjarauður og hvítur og hrærið rauðunum í, einni
í senn. Blandið kaffiduft og hveiti saman og sigtið í hræruna smám saman.
Bræðið súkkulaðið og bætið því út í. Hrærið vel uns allt er vel blandað.
Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim varlega í deigið með sleikju.
Látið deigið í vel smurt og strá springform og bakið á neðstu rim við 200
gráður í 30-35 mínútur. Kælið kökuna í forminu. Þegar hún er alveg köld er
hægt að smyrja hjúpnum yfir.
Athugið að kakan er klesst og því þarf hún að fá að kólna áður en hún er
tekin úr forminu.