Eplaskífur með sýrðum rjóma og ávaxtamauki

4 dl hveiti
1 tsk sítrónubörkur eða dropar
1/2 tsk matarsódi
1 msk sykur
1/4 tsk salt
4 dl súrmjólk
3 egg
50 g smjör, brætt

Blandið saman öllum þurrefnunum og hrærið út með súrmjólk, eggjarauðum og smjöri.
Látið deigið bíða í u.þ.b. 30 mínútur. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim varlega samn við.
Hitið eplaskífupönnuna og setjið deig í hvert hólf fyllt að 3/4. Bakið við vægan hita.
Snúið eplaskífunum við þegar yfirborðið hefur þornað nóg til að kúlulagið haldist á neðri hliðinni.
Berið skífurnar fram volgar með sýrðum rjóma og eplamús eða öðru ávaxtamauki.