Þessar bragðgóðu kökur klikka aldrei og er því tilvalið að baka þær nú fyrir
jólin þar sem þær eru einfaldar, bragðgóðar og fljótlegar.
Enskar karamellukökur
1 bolli mjúkt smjör
1 bolli sykur
1 egg
2 bollar hveiti
1 teskeið kanill
1 bolli saxaðar pekan- eða valhnetur.
Hitið ofninn í 135 gráður. Hrærið saman í stórri skál smjör og sykur. Aðskiljið
eggið og hrærið eggjarauðuna saman við blönduna. Geymið eggjahvítuna. Blandið
saman í annarri skál hveiti og kanil og bætið við smjörblönduna. Fletjið deigið
út á bökunarplötu og hrærið eggjahvítuna þangað til hún er orðin froðukennd og
burstið yfir deigið. Stráið hnetunum yfir. Bakið í klukkustund eða þar til kakan
er orðin þétt í sér. Skerið í bita og látið kólna.