Ensk jólakaka

300 g rúsínur
100 g kúrennur (má sleppa)
150 g þurrkaðar apríkósur
100 g döðlur, steinalausar
75 g kokkteilber, rauð og græn (má sleppa)
50 g súkkat eða sultaður appelsínubörkur
100 g brasilíuhnetur eða möndlur, grófsaxsaðar
1 dl dökkt romm eða brandí, og meira til að vökva kökuna
100 gr smjör
50 g sykur
2 egg
100 g hveiti
1 tsk. Lyftiduft
50 g heslihnetur, malaðar

Aðferð:

Blandið saman ávöxtum og brasilíuhnetum í skál, hellið romminu yfir og látið standa til næsta dags. Hrærið í blöndunni öðruhverju. Hitið ofninn í 150°c. Hrærið saman smjör, sykur og þeytið eggjunum síðan saman við. Blandið saman hveiti, lyftidufti og heslihnetum og hrærið saman við. Setjið í smurt pappírsklætt jólakökuform eða smelluform meðal stórt, og bakið neðarlega í ofni í 2 – 2 ½ klst. Stingið í miðja kökuna með prjóni til að athuga hvort hún er tilbúin. Látið hana kólna í forminu. Losið hana úr því þegar hún er köld, vökvið hana með tveim til þrem msk. Af rommi eða brandýi og pakkið henni vel inn í bökunnarpappír og plast eða álpappír (hafið ekki álpappír næst kökunni, a.m.k. ekki ef hún á að geymast lengi). Geymið hana í a.m.k mánuð og gjarnan mun lengur og vökvið hana nokkrum sinnum með dálitlu rommi eða brandýi.

Fróðleikur

Margir hafa það fyrir sið að baka enska jólaköku fyrir hátíðarnar. Oftast eru kökur af þessu tagi fullar af þurrkuðum ávöxtum, hnetum, súkkati og kokteilberjum og eru því afar þéttar í sér. Fyrir þá sem þykir hin hefðbundna enska jólakaka of beisk er gott ráð að bæta söxuðu súkkulaði í kökuna og verður hún við það sætari og afar gómsæt. Allir geta þó lagað hana að sínum smekk hvað innihald varðar.

Það sem gerir kökuna sérstaka og skemmtilega er að hún þarfnast vökvunar fram að jólum. Að vísu fer það eftir smekk hvers og eins hvort þeir vilja vökva kökuna eða ekki en vaninn er þó að vökva hana ýmist með sérrí, viskí, koníaki eða rommi. Sumir vökva hana reglulega í mánuð áður en hún er borin fram en aðrir byrja í vikunni fyrir jól og vökva hana daglega til jóla. Þá er víninu dreypt yfir kökuna með skeið en svo er líka hægt að stinga göt á kökuna með prjóni og hella örlitlu af víni yfir hana. Aðrir eru nákvæmari og nota sprautu til að vökva kökuna og þá er hún einfaldlega keypt í apóteki, fyllt af víni og síðan sprautað litlu magni á mismunandi staði. Eftir vökvun er kökunni pakkað vandlega inn´i álpappír eða viskustykki og stungið í poka þannig að hún sé nokkuð loftþétt og haldist blaut og fersk.  Að lokum er hægt að hjúpa jólakökuna með marsípani eða súkkulaði og skreyta eftir smekk. Hún sómir sér þó líka vel óskreytt eða með nokkrum möndlum til skrauts og flórsykri.