Einföld ostakaka
Botn:
1 pakki Frón hafrakex
100 gr smjör
- Smjör brætt í potti
og hafrakexið mulið út í smjörið, þessu þrýst í botninn á eldföstu móti og bakað
í 10 mínútur við 200°c.
Fylling:
1 peli rjómi
1/3-1/2 dós hreinn rjómaostur
2 dl flórsykur
- Rjómaosti og flórsykri hrært vel saman þangað til blandan verður mjúk, rjómi
þeyttur, þessu blandað svo vel saman og sett ofan á kældan botninn.
Það er best að geyma ostakökuna í sólarhring áður en hún er borin fram.