Bolla, bolla. Dýrindis bollur úr spelti

Valentína Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Móður náttúru, er sannkölluð bollustelpa sem galdrar fram dýrindis bollur úr spelti.

Innihald:
300 g heilhveiti
800 g fínmalað spelt
1 bréf þurrger
100 g hrásykur
1½ tsk. Salt
2 egg
700 ml ylvolg mjólk
1 tsk. Vanilludropar

Aðferð: Blandið saman þurrefnunum í hrærivélarskál, hrærið vanilludropum og eggjum út í volga mjólkina. Hellið mjólkurblöndunni rólega saman við þurrefnin á meðan hnoðað er í hrærivélinni. Látið deigið hefast á hlýjum stað með rakan klút yfir skálinni, í um það bil klukkustund.

Hnoðið deigið aftur í höndunum. Mótið litlar bollur og setjið á bökunarplötu sem er klædd með smjörpappír. Breiðið yfir rakt stykki og látið hefast aftur í 20 mín. Bakið bollurnar við 200°C í um það bil 12 mín.

Látið bollurnar kólna á bökunargrind. Skerið þær í tvennt og setjið sykurlausa sultu og rjóma á milli.