Döðlu- og súkkulaðiterta

Hráefni:

4-5 egg eftir stærð

100 g hrásykur

½ bolli kókosmjöl

½ bolli fínt spelthveiti

½ teskeið lyftiduft

2 matskeiðar smjör (við stofuhita)

1 bolli smátt brytjaðar döðlur

1 bolli smátt brytjað, 70%

suðusúkkulaði.

Aðferð:

Eggin eru þeytt vel. Því næst er hrásykrinum hrært vel saman við eggin.
Öllu þurrefni og smjöri er blandað varlega með sleif saman við eggjahræruna.
Bakað í hringformi við 165-170°C í 15-20 mínútur.

Kremið:

200 g 70% suðusúkkulaði og 50 g

af smjöri er brætt við lágan hita. Dreifið súkkulaðikreminu yfir kökuna og látið kólna.
Skreytið svo með uppáhaldsávöxtunum ykkar. Berið fram með þeyttum rjóma.