Dásamlegar súkkulaði jólabitakökur (Maður lifandi)

 

3 msk kaldpressuð lífræn kókosolía frá Bode

1 msk lífrænt kakó duft

100 g blandaðar möndlur, það er afar gott að nota pekan hnetur

1 msk xylitol sætuefni

1 msk agave sýróp

 

Bræðið kókósolíuna í potti á lágum hita, hrærið sætuefninu og kakóduftinu saman við og blandið svo muldu hnetunum út í og blandið vel saman.

Byrja á því að setja form í frysti í ca 15 mín. Að því loknu setjið þá bökunarpappír í formið. Fletjið deigið út og setjið í formið. Setjið inn í frysti í 15 mín eða þar til að deigið er alveg hart og brjótið niður í bita. Njótið vel